Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. mars 2023 12:45
Elvar Geir Magnússon
41 árs Zlatan í sænska landsliðshópnum
Mynd: Getty Images
Janne Anderson landsliðsþjálfari Svía hefur staðfest landsliðshóp fyrir komandi leiki gegn Belgíu og Aserbaidsjan. Zlatan Ibrahimovic er í hópnum.

Hinn 41 árs Zlatan er mættur aftur í slaginn með AC Milan eftir hnéaðgerð sem hann gekkst undir í lok síðasta tímabils.

„Zlatan sagðist vera klár, hann er í fínu standi. Ég tel að hann geti hjálpað okkur, umfram allt innan vallar en líka utan hans," segir Andersson.

Zlatan mætti aftur í landsliðið fyrir ári en gat ekki hjálpað Svíum að leggja Pólverja í umspili fyrir HM í Katar.

Samtals hefur hann spilað 68 mínútur í þremur leikjum með Milan á tímabilinu en samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.


Athugasemdir
banner
banner
banner