Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 15. mars 2023 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd undirbýr risastórt tilboð í Kolo Muani
Randal Kolo Muani.
Randal Kolo Muani.
Mynd: EPA
Það kemur fram í þýskum fjölmiðlum í dag að Manchester United sé að undirbúa risastórt tilboð í Randal Kolo Muani, framherja Eintracht Frankfurt í Þýskalandi.

Man Utd er í leit að sóknarmanni og Bild greinir frá því að félagið sé að undirbúa ansi stórt tilboð í Kolo Muani.

Franski landsliðsmaðurinn gekk í raðir Frankfurt á frjálsri sölu frá Nantes síðasta sumar, en sagan segir að United sé núna tilbúið að borga 106 milljónir punda fyrir hann.

Hinn 24 ára gamli Kolo Muani er búinn að leika afskaplega vel á þessu tímabili og hefur skorað 16 mörk í 34 keppnisleikjum. Hann er samningsbundinn Frankfurt til 2027 en félagið er tilbúið að skoða tilboð sem eru stærri en 100 milljónir punda.

Dusan Vlahovic, Harry Kane og Victor Osimhen hafa einnig verið orðaðir við Man Utd.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner