Chelsea opnar viðræður við Milan - Saliba í samningaviðræðum - Bellingham til Dortmund?
   fim 15. ágúst 2024 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Íhuga riftun á samningi Zouma - Hlusta á tilboð í Cornet
Zouma með Sambandsdeildarbikarinn.
Zouma með Sambandsdeildarbikarinn.
Mynd: EPA
Kurt Zouma er ennþá í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Shabab Al-Ahli hefur áhuga á að fá franska miðvörðinn í sínar raðir en hann féll á læknisskoðun.

West Ham er að vinna í mögulegri lausn á málinu en Zouma er ekki í plönum félagsins fyrir komandi tímabi. Það er einnig áhugi á honum frá Sádi-Arabíu.

Ekki hefur verið útilokað að samningnum verði rift, Zouma á eitt ár eftir af samningi sínum.

West Ham er þá einnig tilbúið að hlusta á tilboð í kantmanninn Maxwel Cornet.

Cornet hefur einungis byrjað þrjá leiki í úrvalsdeildinni síðustu tvö tímabil. Hann er samningsbundinn til 2027 og möguleiki á árs framlenginu.
Athugasemdir
banner
banner