Ítalski miðjumaðurinn Sandro Tonali mun taka ákvörðun varðandi framtíð sína eftir tímabilið. Þetta segir Giuseppe Riso umboðsmaður leikmannsins.
Arsenal spurðist fyrir um Tonali í janúarglugganum en Newcastle United svaraði að hann sé ekki til sölu.
„Newcastle vill ekki missa Sandro og hann vill leiða félagið til sigurs í Meistaradeildinni. Allt sem tengist framtíð hans verður að bíða þar til eftir tímabilið, við verðum að sjá til," sagði Riso við Tuttosport.
„Newcastle gat ekki selt hann í janúar og það er enginn tilgangur í því að skipta um félag á miðju tímabili. Sandro líður vel í Newcastle og er að njóta sín með félaginu."
Þetta er annað viðtalið sem Riso gefur til ítalskra fjölmiðla í vikunni en hann neitaði að hafa boðið Tonali til Arsenal í síðasta viðtali. Leikmanninum líður vel í norðrinu en Arsenal er mjög áhugasamt.
Tonali er 25 ára gamall og hefur spilað tæplega 100 keppnisleiki með Newcastle. Hann er með tvö og hálft ár eftir af samningi.
Hann er með 30 landsleiki að baki fyrir Ítalíu og hefur einnig verið orðaður við stórveldi Juventus.
06.02.2026 12:57
Tonali pirraður og orðaður í burtu
Athugasemdir






