Verona 0 - 0 Pisa
Fyrsti leikur helgarinnar í efstu deild ítalska boltans fór fram í kvöld þar sem Verona tók á móti Pisa í botnslagnum.
Heimamenn í Veróna héldu boltanum vel innan liðsins í fyrri hálfleik en sköpuðu sér ekki færi. Þeir gáfu heldur ekki færi á sér svo úr varð afar tíðindalítill og markalaus fyrri hálfleikur.
Bæði lið gerðu skiptingar í leikhlé og voru nýliðarnir frá Písa sterkari aðilinn í síðari hálfleik en þeim tókst ekki að skora. Þeir fengu nokkur færi til að setja boltann í netið en tókst ekki, svo lokatölur urðu 0-0.
Liðin eiga bæði 15 stig eftir 24 umferðir og eru þremur stigum frá öruggu sæti í Serie A.
Athugasemdir



