Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 22:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: Valur skoraði fjögur gegn Selfossi
Birkir Jakob skoraði tvennu.
Birkir Jakob skoraði tvennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 4 - 1 Selfoss
Mörk Vals: Emil Nönnu Sigurbjörnsson, Adam Ægir Pálsson og Birkir Jakob Jónsson (2).
Mark Selfoss: Elvar Orri Sigurbjörnsson

Valur tók á móti Selfossi í æfingaleik í kvöld. Völsungur þurfti að fá leik sínum gegn Val í Lengjubikarnum frestað og því spilaði Valur æfingaleik í staðinn. Selfoss verður í B-deild Lengjubikarsins sem er ekki farin af stað.

Valur vann 4-1 sigur í leiknum. Valsarar tefldu fram nokkuð sterku liði en þó voru óreyndari leikmenn í bland. Emil Nönnu Sigurbjörnsson (2007) spilaði í Reykjavíkurmótinu og var hann á skotskónum í kvöld. Kristján Oddur Kristjánsson (2007) og Sturla Sagatun Kristjánsson (2006), sem hefur verið á reynslu hjá liðinu, (2006) voru einnig í byrjunarliðinu.

Birkir Jakob jónsson skoraði tvennu og Adam Ægir Pálsson skoraði eitt. Það var Elvar Orri Sigurbjörnsson sem skoraði mark Selfyssinga í leiknum.

Byrjunarlið Vals: Stefán Þór; Ingimar Stöle, Hólmar Örn, Kristján Oddur, Hörður Ingi; Birkir Heimis, Sturla, Emil; Tryggvi Hrafn, Birkir Jakob og Adam.


Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner