Iago, sonur brasilíska varnarmannsins Thiago Silva, er í leikmannahópnum hjá U15 ára landsliði Englands sem mætir Bandaríkjunum og Kýpur í næstu viku.
Iago er 14 ára gamall varnarmaður sem er í akademíu Chelsea á Englandi.
Faðir hans spilaði með Chelsea frá 2020 til 2024, en leikur í dag með Porto í Portúgal.
Hann á tvo syni, en sá eldri heitir Isago og er 17 ára gamall. Hann er einnig á mála hjá Chelsea.
Iago, sá yngri, hefur verið valinn í leikmannahóp U15 ára landsliðs Englands fyrir leiki gegn Bandaríkjunum og Kýpur í næstu viku.
Fimm leikmenn í hópnum koma frá Chelsea, Blackburn og Derby eiga tvo fulltrúa og þá er Arsenal, Liverpool og Barcelona öll með einn fulltrúa.
???? HERE WE GO! ENGLAND U15 Squad has been announced! New names involved!https://t.co/8hHUvmfjLM pic.twitter.com/NxqQATm2d0
— TheSecretScout (@TheSecretScout_) February 5, 2026
Athugasemdir



