Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 23:11
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski bikarinn: Inter rétt marði vængbrotið lið Torino
Inter fagnar öðru marki sínu.
Inter fagnar öðru marki sínu.
Mynd: EPA
Inter 2 - 1 Torino
1-0 Ange-Yoan Bonny ('35 )
2-0 Andy Diouf ('47 )
2-1 Sandro Kulenovic ('57 )

Inter komið sér í undanúrslit ítalska bikarsins annað árið í röð er það vann 2-1 baráttusigur á Torino í Monza í kvöld.

Það vantaði alls tíu leikmenn í lið Torino sem fór vængbrotið inn í leikinn á meðan Inter var án fjögurra leikmanna.

Ákveðið var að spila á hlutlausum velli þar sem verið er að undirbúa San Siro fyrir opnunarhátíð vetrarólympíuleikana.

Hinn 21 árs gamli Issiaka Kamate var að byrja sinn fyrsta leik með Inter og nýtti hann tilefnið með því að leggja upp fyrra mark Inter á Ange-Yoan Bonny sem stangaði boltanum í netið á 35. mínútu.

Torino fékk færin til þess að skora í fyrri hálfleiknum en fór illa með þau. Inter refsaði fyrir það strax í upphafi síðari hálfleiks er Marcus Thuram kom boltanum á Andy Diouf sem skoraði af stuttu færi.

Eftir tæpan hálftíma komust Torino-menn aftur inn í leikinn er Sandro Kulenovic stýrði fyrirgjöf Marcus Pedersen í netið.

Torino kom boltanum aftur í netið með skalla frá Matteo Prati eftir aukaspyrnu en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Prati átti einnig skot sem fór rétt framhjá markinu eftir mistök Luis Henrique.

Færin fóru forgörðum og heppnin ekki alveg með Torino sem er úr leik en Inter er komið í undanúrslit annað árið í röð þar sem það mun mæta Como eða Napoli.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner