Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   fim 05. febrúar 2026 06:00
Kári Snorrason
Sjáðu hvernig Leverkusen komst áfram í undanúrslit þýska bikarsins
Mynd: EPA
St. Pauli reyndist lítil fyrirstaða fyrir Bayer Leverkusen í átta liða úrslitum DFB Pokal bikarsins í Þýskalandi. Leverkusen vann öruggan 3-0 sigur í fyrradag og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum keppninnar.

Martin Terrier kom liðinu yfir eftir hálftíma leik, Patrick Schick tvöfaldaði forystuna eftir rúmlega klukkutíma leik og Jonas Hoffmann gulltryggði sigurinn í uppbótartíma.

Stuttgart er einnig komið áfram í undanúrslit en í næstu viku skýrist hvaða tvö lið bætast í hópinn. Hertha Berlin mætir Freiburg á þriðjudag og á miðvikudag eigast við Bayern München og RB Leipzig.

Sjáðu öll mörkin úr sigri Leverkusen í spilaranum hér að neðan.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner