Brasilíski sóknarmaðurinn Endrick skoraði fimmta mark sitt fyrir franska liðið Lyon er það vann 2-0 sigur á B-deildarliði Laval í 16-liða úrslitum bikarsins í kvöld.
Endrick er að njóta lífsins hjá Lyon á láni frá Real Madrid. Mínúturnar hjá Madrídingum voru af skornum skammti, en hann er fastamaður hjá Lyon og orðinn afar mikilvægur.
Hann skoraði fyrra mark Lyon á 80. mínútu leiksins með bylmingsskoti sem var hans fimmta fyrir félagið og þá var seinna markið sjálfsmark.
Lyon komið áfram ásamt Lorient sem vann óvæntan 2-0 sigur á PSG-bönunum í Paris FC.
Nice og Toulouse unnu góða sigra og þá fer Lens, sem er í titilbaráttu í deildinni, áfram eftir að hafa unnið 4-2 sigur á Troyes. Abdallah Sima skoraði tvö fyrir Lens.
Endrick vai pra Copa do Mundo pic.twitter.com/vXj2cGGD8k
— Olé do Brasil (@Oledobrasil) February 4, 2026
Athugasemdir



