Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Arsenal reyndi við Goretzka rétt fyrir gluggalok
Samningur Goretzka rennur út næsta sumar.
Samningur Goretzka rennur út næsta sumar.
Mynd: EPA
Þýska blaðið BILD segir að Arsenal hafi í gluggalok reynt að fá þýska landsliðsmiðjumanninn Leon Goretzka frá Bayern München.

Goretzka er 31 árs og er búið að staðfesta að hann klárar tímabilið með Bayern og yfirgefur það svo á frjálsri sölu þegar samningur hans rennur út í sumar.

Goretzka hafnaði Atletico Madrid en hann er sagður hafa tekið ákvörðun um að klára tímabilið með Bæjurum og fara svo frítt eftir tímabilið.

Líklegt er að Arsenal og Atletico haldi áfram að reyna við han fyrir sumarið en Tottenham, AC Milan, Napoli og Juventus gætu blandað sér í baráttuna.

Samkvæmt þýskum fjölmiðlum telur Goretzka að enska úrvalsdeildin henti leikstíl sínum vel og er spenntur fyrir að reyna fyrir sér þar.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Sunderland 24 9 9 6 27 26 +1 36
9 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
10 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
11 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 24 3 6 15 25 47 -22 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner