Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Semur við Njarðvík og fer á láni í Víði
Mynd: Njarðvík
Njarðvíkingurinn Adolf Þór Haraldsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið en hann gildir út 2029. Hann mun leik á láni hjá Víði í Garði á komandi leiktíð.

Adolf er fæddur árið 2007 og kemur úr yngri flokka starfi félagsins og á tvo leiki með meistaraflokki félagsins en báðir komu í Lengjubikarnum á síðasta ári.

Hann hefur nú undirritað sinn fyrsta samning og í kjölfarið var hann sendur til Víðis á láni þar sem hann mun spila með liðinu í 3. deildinni og öðlast mikilvæga reynslu.

Víðir hafnaði í næst neðsta sæti 2. deildar á síðasta ári og féll því niður í 3. deildina en stefnan er sett beint upp.

Í október 2024 var greint frá því að Víðir og Reynir Sandgerði myndu sameinast, en tillagan var síðar felld á aðalfundi beggja félaga í maí á síðasta ári. Bæði lið munu leika í 3. deildinni í sumar.


Athugasemdir
banner