Franski miðjumaðurinn Paul Pogba er ekki í Meistaradeildarhópnum hjá Mónakó fyrir útsláttarkeppnina en þetta staðfesti félagið í dag.
Pogba gerði tveggja ára samning við Mónakó á síðasta ári eftir að hafa verið án félags í sjö mánuði og tekið út bann fyrir brot á lyfjareglum.
Frakkinn hefur verið í vandræðum með meiðsli á þessari leiktíð og aðeins komið við sögu í þremur leikjum og ekki enn byrjað leik.
Mónakó tók ákvörðun um að hafa Pogba ekki í Meistaradeildarhópnum fyrir umspilið gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain.
„Læknateymið er með alla einbeitingu á að finna lausn við meiðslum hans þannig hann geti snúið aftur á völlinn. Paul er enn að jafna sig af meiðslum á kálfa," sagði Thiago Scuro, yfirmaður íþróttamála hjá Mónakó.
Athugasemdir



