Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
banner
   mið 04. febrúar 2026 21:32
Brynjar Ingi Erluson
Hildur úr leik í bikarnum - Ásdís Karen spilaði í naumu tapi
Kvenaboltinn
Hildur Antons er úr leik í spænska bikarnum
Hildur Antons er úr leik í spænska bikarnum
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Ásdís Karen Halldórsdóttir og Hildur Antonsdóttir voru báðar í tapliðum í bikarnum í dag.

Ásdís var í byrjunarliði Braga sem tapaði fyrri leiknum í undanúrslitum portúgalska bikarsins gegn Benfica, 1-0, á heimavelli sínum.

Braga fær tækifærið til þess að snúa taflinu við eftir rúman mánuð og koma sér í úrslitaleikinn.

Hildur var á meðan á miðsvæðinu hjá CFF Madrid sem datt úr leik í 8-liða úrslitum spænska bikarsins eftir að hafa tapað fyrir Tenerife, 1-0, en sigurmarkið kom eftir tæpar tvær mínútur.

Madrídarliðið hefur sex sinnum komist í 8-liða úrslit keppninnar og einu sinni í undanúrslit frá því félagið var sett á laggirnar árið 2010.
Athugasemdir
banner
banner