Raheem Sterling er án félags eftir að samningi hans við Chelsea var rift. Átján mánuðir voru eftir af samningi hans við Chelsea en hann kom til félagsins fyrir 47,5 milljónir punda frá Manchester City 2022.
Félagaskiptaglugginn lokaði á mánudag en þar sem Sterling var án félags hafði hann út gærdaginn til að semja við annað úrvalsdeildarfélag.
Hann getur það ekki lengur því félögin hafa tilkynnt 25 manna leikmannahópa fyrir seinni hluta tímabilsins. Samkvæmt Sky Sports hafa fylltu öll félögin sína 25 manna hópa og því ekki hægt að bæta neinum við.

Sterling, sem er 31 árs, lék 81 leik fyrir Chelsea en hefur ekki leikið mótsleik fyrir félagið síðan í maí 2024 og æfði ekki með liðsfélögum sínum í vetur.
Sterling hefur verið orðaður við ítalska boltann, Union Berlin og Leverkusen í Þýskalandi, Samsunspor í Tyrklandi og Qarabag í Aserbaísjan.
Athugasemdir