Íslandsmeistarar Víkings hafa framlengt samninga þriggja stórefnilega leikmanna en það eru þeir Davíð Helgi Aronsson, Haraldur Ágúst Brynjarsson og Þorri Ingólfsson.
Davíð Helgi er 18 ára gamall miðvörður sem eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Njarðvík þar sem hann var einn af allra bestu varnarmönnum Lengjudeildarinnar.
Hann á 18 landsleiki að baki fyrir yngri landsliðin, en hann gerir samning við Víking út 2029.
Þorri er 16 ára gamall sóknarmaður sem hefur farið mikinn með Víkingum á undirbúningstímabilinu og er þeirra markahæsti leikmaður. Hann þreytti frumraun sína í Bestu deildinni á síðasta ári er Víkingur varð Íslandsmeistari og á auk þess 11 leiki að baki með yngri landsliðunum og eitt mark.
Hann semur einnig við Víking út 2029.
Haraldur er síðan 18 ára gamall hægri bakvörður með mikinn drifkraft og metnað. Hann byrjaði meistaraflokksferil sinn í 7-0 stórsigri Víkings á KR á síðasta ári og á 10 landsleiki fyrir yngri landsliðin.
Framtíðin er greinilega björt í Víkinni.
Athugasemdir



