Willum Þór Willumsson sneri aftur í hollenska boltann í kvöld er hann kom inn af bekknum í 1-0 sigri NEC Nijmegen á Volendam í 8-liða úrslitum hollenska bikarsins og átti hann stóran þátt í að liðið mun spila í undanúrslitum þetta árið.
Blikinn kom til NEC frá Birmingham City en hann lék áður með Go Ahead Eagles í úrvalsdeildinni þar sem hann var í algeru lykilhlutverki.
Hann kom inn á 65. mínútu í dag í stöðunni 0-0 og aðeins tíu mínútum síðar bjó hann til sigurmarkið sem þótti þó heldur umdeilt.
Willum átti skalla úr teignum hátt upp í loft sem markvörður Volendam missti eftir að hafa lent saman við sóknarmann NEC og náði Sami Ouaissa að hirða boltann og setja hann í netið.
VAR skoðaði atvikið vel og vandlega, en miðað við endursýningu var aðeins verið að skora mögulega rangstöðu en ekki brot. Markið stóð og dugði það til að koma NEC áfram í undanúrsitin.
NEC er komið áfram ásamt AZ Alkmaar og PSV, en á morgun mun það ráðast hvort Telstar eða fyrrum félagar Willums í Go Ahead verða í pottinum fyrir undanúrslitin.
Athugasemdir



