Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
banner
   fim 05. febrúar 2026 11:45
Elvar Geir Magnússon
Richard Keys og Andy Gray að kveðja Katar
Grallaraspóarnir Andy Gray og Richard Keys.
Grallaraspóarnir Andy Gray og Richard Keys.
Mynd: Instagram/richardkeysofficial
Richard Keys liggur ekki á skoðunum sínum.
Richard Keys liggur ekki á skoðunum sínum.
Mynd: beIN SPORTS
Fjölmiðlavinirnir Richard Keys and Andy Gray munu hætta hjá beIN Sports sjónvarpsstöðinni í Katar í sumar, eftir að hafa starfað þar í þrettán ár.

Þessir miklu reynsluboltar eru 68 og 70 ára og munu láta af störfum þegar samningar þeirra renna út.

Þeir voru andlit fótboltaumfjöllunar Sky Sports í næstum tvo áratugi en voru látnir fara 2011 eftir niðrandi ummæli um konur og kvennafótbolta.

Þeir voru látnir fara eftir að myndband lak út þar sem þeir voru með kvenfyrirlitningu bak við tjöldin í garð dómarans Sian Massey-Ellis.

Þeir sögðu útilokað að hún kynni rangstöðuregluna þar sem hún væri kona og sögðu að konur ættu ekki að starfa við karlaleiki.

Þeim var tekið opnum örmum í Katar og hafa síðan 2013 séð um umfjöllun beIN Sports um ensku úrvalsdeildina.

Þeir hætta eftir yfirstandandi tímabil og munu ekki starfa í kringum umfjöllun um HM í sumar.
Athugasemdir
banner
banner