Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 19:52
Elvar Geir Magnússon
50 þúsund áhorfendur á unglingaleik
Það var alvöru stemning á U19 leiknum í Köln.
Það var alvöru stemning á U19 leiknum í Köln.
Mynd: X/fckoeln
50.000 áhorfendur fylltu RheinEnergieStadion í Köln í Þýskalandi þegar U19 lið Kölnar og Inter mættust í 32-liða úrslitum í Evrópukeppni unglingaliða.

Aldrei hafa fleiri áhorfendur mætt á leik í sögu keppninnar en fyrrum met átti Trabzonspor en 40.368 mættu á leik hjá liðinu gegn einmitt Inter í Tyrklandi á síðasta tímabili.

Allt trylltist á vellinum í Köln þegar Fynn Schenten jafnaði fyrir heimamenn í 1-1 á 80. mínútu. En tvö mörk frá Inter í uppbótartíma gerðu það að verkum að Inter verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitin á föstudag.

Auk Inter verða AZ Alkmaar, Club Brugge, Real Madrid, Zilina, Chelsea, Frankfurt, Atletico Madrid, Legia Varsjá, PSG, Benfica, Villarreal, Maccabi Haifa, HJK Helsinki, Sporting og Real Betis í pottinum.


Athugasemdir
banner
banner