Liverpool tekur á móti Manchester City á sunnudaginn í ensku úrvalsdeildinni. Arne Slot, stjóri Liverpool, hélt fréttamannafund í bítið en hér má sjá samantekt af öllu því helsta sem þar kom fram.
Staðan á hópnum - Gomez gæti komið við sögu
Jeremie Frimpong er enn fjarri góðu gamni en varnarmaðurinn Joe Gomez gæti komið við sögu á sunnudaginn, þó ekki sem byrjunarliðsmaður.
„Við vonum að Joe gæti æft á laugardag, hann er ekki tilbúinn að byrja en gæti hjálpað liðinu ef á þarf að halda. Eins og þið vitið þá eru ekki margir varnarmenn heilir sem stendur," segir Slot.
Staðan á hópnum - Gomez gæti komið við sögu
Jeremie Frimpong er enn fjarri góðu gamni en varnarmaðurinn Joe Gomez gæti komið við sögu á sunnudaginn, þó ekki sem byrjunarliðsmaður.
„Við vonum að Joe gæti æft á laugardag, hann er ekki tilbúinn að byrja en gæti hjálpað liðinu ef á þarf að halda. Eins og þið vitið þá eru ekki margir varnarmenn heilir sem stendur," segir Slot.
Um kaupin á varnarmanninum Jeremy Jacquet:
Þessi tvítugi leikmaður gengur í raðir Liverpool frá Rennes í sumar. Kaupverðið nemur um 60 milljónum punda.
„Ég er auðvitað mjög ánægður. Hann er mjög hæfileikaríkur og við vorum ekki eina félagið sem hafði áhuga. Stórt hrós á fólkið sem vinnur vel að því að kaupa leikmenn. Við viljum fá til okkar unga og hæfileikaríka leikmenn," segir Slot.
Er verið að sækja hann með það fyrir augum að koma í stað Virgil van Dijk (34)?
„Allt sem er gert hér er aldrei í neinni örvæntingu, það er alltaf framtíðarhugmynd. Auðvitað vitum við að Virgil verður ekki leikmaður hér næsta áratug en hann á eitt og hálft ár eftir af samningi, hann verður hér þann tíma og kannski lengur ef hann heldur sér í svona standi. Hann á hrós skilið fyrir að spila á þriggja daga fresti á þessum aldri, ekki bara fyrir liðið sitt heldur einnig landslið."
Um Manchester City:
„Úrslitin eru mikilvæg fyrir öll lið sem eru að spila um helgina enda komið að síðasta þriðjungnum á mótinu. City er virkilega gott lið sem vann liðið sem við unnum um síðustu helgi (Newcastle) án sinna sterkustu manna. City er gríðarlegt afl og mun vera það."
Manchester City vann 3-0 sigur þegar liðin áttust við á Etihad í nóvember. „Við viljum sýna aðra útgáfu af okkur að þessu sinni," segir Slot.
Um sigurinn á Newcastle síðasta laugardag:
„Í síðustu tveimur leikjum höfum við verið virkilega góðir í báðum teigum sem er bæting og fólk er farið að taka eftir því að spilamennska okkar er að verða betri líka."
Curtis Jones var orðaður við brottför frá liðinu í janúarglugganum:
„Félagið er meðvitað um að hann á eitt og hálft ár eftir af samningi. Það er það eina sem ég vil segja um það mál. Hann hefur spilað fullt af mínútum með okkur en hefur kannski verið óheppinn að því leyti að miðjan er eina svæðið þar sem við höfum ekki verið að lenda í meiðslum."
Um Florian Wirtz sem hefur spilað frábærlega:
„Leikmaðurinn á skilið hrós því hann vinnur vinnuna. Við höfum alltaf vitað að hann er með sérstaka hæfileika og höfum aldrei efast um hann. Hann tengir betur við liðsfélaga sína núna en það er án boltans sem ég sé mestu bætinguna hjá honum."
Um Milos Kerkez sem er líka farinn að spila betur:
„Þetta er eðlilegt hjá ungum leikmönnum og það sem við stjórar þurfum að gera er að halda áfram að treysta þeim og trúa á þá því við vitum hvaða leikmann við keyptum."
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 24 | 16 | 5 | 3 | 46 | 17 | +29 | 53 |
| 2 | Man City | 24 | 14 | 5 | 5 | 49 | 23 | +26 | 47 |
| 3 | Aston Villa | 24 | 14 | 4 | 6 | 35 | 26 | +9 | 46 |
| 4 | Man Utd | 24 | 11 | 8 | 5 | 44 | 36 | +8 | 41 |
| 5 | Chelsea | 24 | 11 | 7 | 6 | 42 | 27 | +15 | 40 |
| 6 | Liverpool | 24 | 11 | 6 | 7 | 39 | 33 | +6 | 39 |
| 7 | Brentford | 24 | 11 | 3 | 10 | 36 | 32 | +4 | 36 |
| 8 | Sunderland | 24 | 9 | 9 | 6 | 27 | 26 | +1 | 36 |
| 9 | Fulham | 24 | 10 | 4 | 10 | 34 | 35 | -1 | 34 |
| 10 | Everton | 24 | 9 | 7 | 8 | 26 | 27 | -1 | 34 |
| 11 | Newcastle | 24 | 9 | 6 | 9 | 33 | 33 | 0 | 33 |
| 12 | Bournemouth | 24 | 8 | 9 | 7 | 40 | 43 | -3 | 33 |
| 13 | Brighton | 24 | 7 | 10 | 7 | 34 | 32 | +2 | 31 |
| 14 | Tottenham | 24 | 7 | 8 | 9 | 35 | 33 | +2 | 29 |
| 15 | Crystal Palace | 24 | 7 | 8 | 9 | 25 | 29 | -4 | 29 |
| 16 | Leeds | 24 | 6 | 8 | 10 | 31 | 42 | -11 | 26 |
| 17 | Nott. Forest | 24 | 7 | 5 | 12 | 24 | 35 | -11 | 26 |
| 18 | West Ham | 24 | 5 | 5 | 14 | 29 | 48 | -19 | 20 |
| 19 | Burnley | 24 | 3 | 6 | 15 | 25 | 47 | -22 | 15 |
| 20 | Wolves | 24 | 1 | 5 | 18 | 15 | 45 | -30 | 8 |
Athugasemdir




