Þaða var nóg um að vera í 23. umferð Serie A. Áhugaverðustu úrslitin komu þá úr markalausri viðureign Como og Atalanta.
Það er kannski ekki saga til næsta bæjar að leikur í ítölsku deildinni endi með markalausu jafntefli nema hvað að Como skapaði sér færi sem samsvaraði rúmlega fimm í xG án þess að ná að skora.
Ungur miðvörður Atalanta, Honest Ahanor lét reka sig af velli snemma leiks eftir að hafa slegið til leikmanns Como og voru tíu leikmenn Atalanta í nauðvörn nær allan leikinn.
Como sótti linnulaust og skapaði sér hvert færið á fætur öðru en tókst ekki að koma boltanum framhjá markverði Atalanta, Marco Carnesecchi, sem átti stórleik og varði ítrekað meistaralega.
Heimamenn fengu svo gullið tækifæri til að tryggja sér sigur þegar vítaspyrna var dæmd seint í uppbótartíma. Nico Paz steig á vítapunktinn á 98. mínútu en Carnesecchi varði spyrnuna og tryggði Atalanta stigið og kórónaði hann frábæra frammistöðu.
Sjáðu allt það helsta úr leik Como og Atalanta og úr öllum öðrum leikjum úr 23. umferð Serie A í spilaranum hér að neðan.

Athugasemdir