Heimir Guðjónsson þjálfari Íslandsmeistara FH segir að hann þurfi að fá einn leikmann til viðbótar í leikmannahóp sinn áður en Íslandsmótið hefst í vor og býst við að þurfa að leita erlendis til að finna þann mann.
,,Þetta var að mörgu leiti fínn leikur á löngum köflum. Spiliði gekk vel og sérstaklega í seinni hálfleik. Við vorum að ná að opna og fara út á vængina og fá fyrirgjafir. Fyrstu þrjú mörkin komu þannig. En erfiður leikur, engu að síður. Fjölnisliðið er mjög gott, vel skipulagt og veitti okkur mikla mótspyrnu," sagði Heimir við Fótbolta.net eftir 2 - 4 sigur á Fjölni í Lengjubikarnum í dag.
,,Mér finnst árið hafa farið vel af stað. Við erum búnir að taka þátt í Fótbolta.net mótinu þrjú ár í röð og enduðum í þriðja sæti, við unnum þrjá af fjórum leikjum sem er met. Ég held að við höfum verið búnir að vinna einn leik hin tvö árin svo það er framför. Svo byrjum við á sigri núna. Ég held að þetta sé á ágætis róli hjá okkur."
,,Standið á hópnum er ágætt. Margir í fínu standi, aðrir að koma upp úr meiðslum. Freysi, Óli Palli og Atli Viðar að koma til. Við höfum ennþá nógan tíma og þurfum að æfa vel og undirbúa okkur vel og nýta þessa leiki vel."
En er Heimir enn að líta í kringum sig á leikmannamarkaðnum eða er hann kominn með sinn hóp?
,,Nei, ég er enn að líta í kringum mig. Ég tel að við þurfum einn leikmann í viðbót til að við sérum klárir í mótið. En við flýtum okkur hægt og sjáum hvernig þetta þróast. Svo sjáum við til þegar nær dregur mótinu."
,,Við erum ekki að ræða við neina leikmenn eins og staðan er í dag en við munum láta þetta líða og sjá til. Ætli við þurfum ekki að leita erlendis."























