Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 16. apríl 2016 14:45
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Upptaka - Útvarpsþáttur dagsins í heild sinni
Mynd: Fótbolti.net
Fjölbreytnin var í fyrirrúmi í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon voru við stjórnvölinn.

Upptökur af öllum þáttum koma á Vísi

Guðmundur Benediktsson kom í stórskemmtilegt spjall um enska boltann. Louis van Gaal, Arsene Wenger, Claudio Ranieri og sigur Liverpool á Dortmund komu við sögu í spjallinu sem heyra má í spilaranum hér að ofan.

Simmi á SportTv var í spjalli en hann er einstaklega lunkinn í að missa af frábærum leikjum hjá Liverpool.

Rætt var við fréttamanninn Þórð Má Sigfússon um málefni Laugardalsvallar og þá var hringt í Skúla Jón Friðgeirsson, varnarmann KR. Það eru 15 dagar í Pepsi-deildina!


Athugasemdir
banner
banner