Kolding 1-1 Esbjerg
Kolding og Esbjerg gerðu 1-1 jafntefli í dönsku B-deildinni í dag.
Ólafur Helgi Kristjánsson er þjálfari Esbjerg og Andri Rúnar Bjarnason er leikmaður félagsins. Andri Rúnar hefur verið að glíma við meiðsli en lék fyrstu 69 mínúturnar í dag.
Það var gamli KR-ingurinn Denis Fazlagic sem skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Kolding á 27. mínútu. Finninn Joni Kauko jafnaði leikinn fyrir Esbjerg á 59. mínútu.
Fazlagic lék með KR tímabilið 2016. Esbjerg er í þriðja sæti deildarinnar þegar sjöunda umferðin er ókláruð.
Athugasemdir