Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 18. október 2019 10:00
Magnús Már Einarsson
Pochettino ekki á förum - Boðið í mat hjá leikmönnum
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, telur að hann hafi fullan stuðning frá leikmannahópi liðsins þrátt fyrir einungis þrjá sigra í fyrstu ellefu leikjum tímabilsins.

Pochettino segir að leikmenn hafi boðið sér í kvöldmat í vikunni og það sýni að þeir standi við bakið á honum.

„Þegar þú færð skilaboð frá leikmanni sem býður þér og þjálfaraliðinu í kvöldmat þá geta einungis tveir hlutir gerst," sagði Pochettino.

„Það gæti verið að þeir vilji kveðja. Eða þeir elski þig og þeir vilji sýna að þeir standi með þér. Ég tel að þetta sé það síðarnefnda."

Tottenham mætir Watford í ensku úrvalsdeildinni klukkan 14:00 á morgun.
Athugasemdir
banner
banner