Jadon Sancho mun yfirgefa Manchester United í sumar þegar samningur hans rennur út.
United hefur ekki gefið það opinberlega út en það eru allar líkur á því að það gerist.
United hefur ekki gefið það opinberlega út en það eru allar líkur á því að það gerist.
Sancho er núna á láni hjá Aston Villa en samkvæmt þýska blaðinu Bild eru góðar líkur á því að draumur Sancho verði að veruleika í sumar.
Sancho dreymir nefnilega um að fara aftur til Borussia Dortmund þar sem honum hefur gengið best í gegnum ferilinn. Sebastian Kehl, yfirmaður fótboltamála hjá Dortmund, er mikill aðdáandi Sancho og vill fá hann aftur til félagsins og núna er stjórn félagsins því sammála.
Sancho var keyptur til United frá Dortmund fyrir 73 milljónir punda, kaup sem gengu engan veginn upp.
Athugasemdir

