Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Yfirmaður fótbolta hjá Liverpool orðaður burt
Richard Hughes hér til hægri.
Richard Hughes hér til hægri.
Mynd: Liverpool
Richard Hughes, yfirmaður fótboltamála hjá Liverpool, er á óskalista Al-Hilal Í Sádi-Arabíu.

Þetta kemur fram hjá The Telegraph.

Hughes hefur starfað hjá Liverpool frá 2024 en áður vann hann flott starf hjá Bournemouth. Hann fór mikinn á leikmannamarkaðnum síðasta sumar og gerði til að mynda Alexander Isak að dýrasta leikmanni í sögu enska boltans.

Hughes starfar náið með Michael Edwards sem er yfir fótboltamálaum hjá eigendahópi Liverpool. Báðir eru þeir samningsbundnir Liverpool til sumarsins 2027.

Hingað til hefur Al-Hilal ekki haft samband við Liverpool um hinn 46 ára gamla Hughes.

Al-Hilal er eitt af fjórum félögum í Sádi-Arabíu sem eru eigu stjórnvalda þar í landi. Á meðal leikmanna liðsins eru Karim Benzema, Darwin Nunez, Rúben Neves, João Cancelo og Kalidou Koulibaly.

Samkvæmt Telegraph telur Liverpool að Hughes sé ekki að fara neitt.
Athugasemdir
banner