fim 19. nóvember 2020 21:30
Victor Pálsson
Camavinga til í að framlengja við Rennes
Mynd: Getty Images
Eduardo Camavinga, einn efnilegasti leikmaður Evrópu, er tilbúinn að skrifa undir nýjan samning við Rennes þrátt fyrir áhuga annarra stórliða.

Camavinga er aðeins 18 ára gamall en hann á þrátt fyrir það að baki þrjá landsleiki fyrir Frakkland og er á óskalista liða á borð við Real Madrid og Juventus.

Miðjumaðurinn hefur spilað yfir 50 leiki fyrir Rennes og er ekki að flýta sér burt frá félaginu.

„Þetta er ekki eitthvað sem ég er að hugsa um endalaust. Ég sé og heyri það sem er í gangi," sagði Camavinga við blaðamenn.

„Þetta gerir mig ánægðan. Ég er hjá Rennes og ekki öðrum klúbbum þessa stundina. Við sjáum hvað gerist."

„Ég á tvö ár eftir af samningnum og það er nægur tími til að ræða málin. Að skrifa undir framlengingu hjá félaginu sem skapaði mig væri ánægjulegt."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner