Palmeiras 2 - 0 Al-Ahly
1-0 Wessam Abou Ali ('49 , sjálfsmark)
2-0 Jose Manuel Lopez ('59 )
1-0 Wessam Abou Ali ('49 , sjálfsmark)
2-0 Jose Manuel Lopez ('59 )
Palmeiras spilaði við egypska stórveldið Al-Ahly í annari umferð í riðlakeppni HM félagsliða í dag.
Staðan var markalaus eftir afar dapran fyrri hálfleik þar sem Estevao, kantmaður Palmeiras, komst næst því að skora eftir laglegt einstaklingsframtak en skot hans endaði framhjá.
Renato Veiga leikmaður Palmeiras fékk beint rautt spjald frá Anthony Taylor dómara en Englendingurinn breytti því yfir í gult spjald eftir nánari athugun með aðstoð VAR kerfisins.
Palmeiras gerði tvöfalda skiptingu í leikhlé og mætti út í seinni hálfleikinn af krafti. Brassarnir tóku forystuna á 49. mínútu þegar Wessam Abou Ali skoraði laglegt sjálfsmark með skalla eftir aukaspyrnu.
José López tvöfaldaði forystuna svo tíu mínútum síðar með marki úr skyndisókn eftir misheppnaða aukaspyrnu Al-Ahly. Leikmenn Palmeiras þutu upp völlinn og tókst engum að stöðva López sem skoraði eftir frábært hlaup með boltann.
Leikurinn var stöðvaður eftir markið vegna þrumuveðurs í nágrenninu. Lög í Bandaríkjunum segja til um að viðburðir á opnum svæðum verða að vera stöðvaðir þegar það slær niður eldingu á innan við 12 kílómetra radíus.
Leiknum var svo haldið áfram en Al-Ahly tókst ekki að ógna marki Palmeiras svo lokatölur urðu 2-0.
Palmeiras byrjar HM vel og er með fjögur stig eftir tvær umferðir, eftir að hafa gert jafntefli við Porto í fyrstu umferð.
Al-Ahly er aðeins með eitt stig eftir jafntefli við Inter Miami í fyrstu umferð.
Viðureign Porto gegn Inter Miami er að hefjast.
Athugasemdir