Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 09:30
Elvar Geir Magnússon
Sex tilnefndir sem ungi leikmaður ársins
Liam Delap er meðal þeirra sem eru tilnefndir.
Liam Delap er meðal þeirra sem eru tilnefndir.
Mynd: EPA
Sex leikmenn eru tilnefndir til sem besti ungi leikmaður ársins. Meðal þeirra eru Liam Delap, sem er nýkominn til Chelsea, og Myles Lewis-Skelly, varnarmaður Arsenal.

Delap, sem gekk í raðir Chelsea frá Ipswich fyrr í þessum í mánuði, skoraði 12 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili þrátt fyrir að Ipswich féll niður í Championship-deildina. Lewis-Skelly átti sín fyrstu skref í Arsenal-liðinu og skoraði einnig fyrir enska landsliðið á móti Albaníu fyrr á árinu.

Hinir sem eru tilnefndir eru Milos Kerkez bakvörður Bournemouth, Dean Huijsen varnarmaður sem gekk til liðs við Real Madrid frá Bournemouth, Ethan Nwaneri vængmaður Arsenal sem skoraði 9 mörk á síðasta tímabili og Morgan Rogers miðjumaður Aston Villa sem lagði sitt af mörkum með 14 mörkum og 15 stoðsendingum.

Sigurvegarinn verður tilkynntur við athöfn í Manchester þann 19. ágúst.


Athugasemdir
banner
banner
banner