Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 19:16
Ívan Guðjón Baldursson
Guðrún á förum? - Sædís Rún með tvennu
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í efstu deild norska og sænska kvennaboltans í dag.

Guðrún Arnardóttir spilaði mögulega síðasta leik sinn fyrir sænska stórveldið Rosengård þegar hún bar fyrirliðabandið í 2-2 jafntefli gegn Vittsjö.

Sænska deildin er að hálfna og situr Rosengård í sjötta sæti með 17 stig eftir 12 umferðir.

Guðrún rennur út á samningi hjá Rosengård í sumar og er hún sögð vera líkleg til að skipta um félag. Leikurinn í dag var sá síðasti áður en deildin fer í hlé meðan Evrópumótið er í gangi.

Guðrún lék allan leikinn í dag á meðan Ísabella Sara Tryggvadóttir kom inn af bekknum og fékk síðustu 20 mínúturnar.

Katla Tryggvadóttir var þá í byrjunarliði Kristianstad ásamt Alexöndru Jóhannsdóttur og gaf stoðsendingu í 3-1 sigri gegn Linköping. Katla bar fyrirliðabandið í sigrinum.

Guðný Árnadóttir var ónotaður varamaður í liði Kristianstad en María Catharína Ólafsdóttir Grós var í byrjunarliði Linköping.

Kristianstad er í fjórða sæti deildarinnar, fjórum stigum frá toppnum, á meðan Linköping er í botnbaráttu. Liðið er aðeins komið með 5 stig eftir 12 umferðir.

Að lokum var Fanney Inga Birkisdóttir á bekknum hjá Häcken sem rúllaði yfir Piteå. Häcken er á toppi deildarinnar með 27 stig eftir 12 umferðir.

Í norska boltanum skoraði Sædís Rún Heiðarsdóttir fyrstu tvö mörkin og lagði upp það þriðja í stórsigri Vålerenga gegn Hönefoss.

Sædísi var kippt af velli á 63. mínútu í stöðunni 3-0 til að hvíla hana fyrir komandi átök. Lokatölur urðu 7-0 fyrir Vålerenga sem endurheimtir toppsæti deildarinnar með sigrinum. Þar situr liðið einu stigi fyrir ofan Brann, með 36 stig eftir 14 umferðir.

Iris Ómarsdóttir skoraði loks úr vítaspyrnu þegar Stabæk vann 4-1 gegn Lyn. Stabæk er um miðja deild með 19 stig eftir 14 umferðir.

Rosengård 2 - 2 Vittsjö

Kristianstad 3 - 1 Linköping

Piteå 0 - 5 Häcken


Vålerenga 7 - 0 Hönefoss
1-0 Sædís Rún Heiðarsdóttir ('6)
2-0 Sædís Rún Heiðarsdóttir ('58)
3-0 K. Sævik ('59)
4-0 K. Sævik ('66)
5-0 O. Tvedten ('69)
6-0 K. Sævik ('75)
7-0 O. Tvedten ('93)

Stabæk 4 - 1 Lyn
1-0 G. Ron ('54)
2-0 Iris Omarsdottir ('68, víti)
3-0 E. Osteras ('78)
3-1 J. Olsen ('81)
4-1 E. Osteras ('86)

Athugasemdir