Everton hefur áhuga á Thierno Barry, framherja Villarreal á Spáni, og er hann einn af nokkrum möguleikum sem enska félagið ætlar að skoða í sumarglugganum.
Barry, sem er 22 ára gamall, skoraði 11 mörk í La Liga á síðasta tímabili og gaf 4 stoðsendingar.
Mörg félög úr ensku úrvalsdeildinni eru á höttunum eftir Barry eftir frábært tímabil hans.
Samkvæmt Sky Sports er Everton að halda öllu opnum, en félagið er enn í viðræður við Dominic Calvert-Lewin um nýjan samning.
Calvert-Lewin rennur út á samningi í lok mánaðar og er algerlega óljóst hvort hann verður áfram á næsta tímabili.
Athugasemdir