Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 23:16
Brynjar Ingi Erluson
Isak næstur inn hjá Liverpool?
Mynd: EPA
Liverpool er sagt reiðubúið að leggja fram risatilboð í Alexander Isak, framherja Newcastle United, á næstu vikum.

Enska félagið ætla sér stóra hluti á markaðnum í sumar og hefur það þegar landað Jeremie Frimpong frá Bayer Leverkusen og er Florian Wirtz á leiðinni fyrir metfé.

Næstur á eftir þeim er Milos Kerkez sem kemur frá Bournemouth, en Liverpool ætlar ekki að láta staðar numið því GiveMeSport segir félagið nú undirbúa tilboð í Isak.

Liverpool hefur lengi haft áhuga á Isak en hár verðmiði Newcastle á framherjanum hefur náð að fæla félög frá.

Englandsmeistararnir ætla samt sem áður að gera tilraun til að sækja hann, en það ætlar að leggja fram rúmlega 100 milljóna punda tilboð í leikmanninn og opna samtalið.

Isak, sem er 25 ára gamall, hefur skorað 62 mörk í öllum keppnum með Newcastle frá því hann kom frá Real Sociedad fyrir þremur árum.

Liverpool mun þurfa að selja leikmenn til að fjármagna kaupin á Isak, en Darwin Nunez mun yfirgefa félagið og þá gæti Diogo Jota einnig farið.
Athugasemdir
banner
banner