Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þetta er minn maður, ég hef séð þennan áður"
Johannes Vall.
Johannes Vall.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur lítið gengið hjá ÍA í sumar og situr liðið á botni Bestu deildarinnar þegar þessi frétt er skrifuð. Það hafa margir leikmenn liðsins tekið skref niður á við frá því í fyrra en hægt er að tala um að bakvörðurinn Johannes Vall hafi tekið stærsta skrefið.

Vall var stórkostlegur í fyrra og er óhætt að tala um að hann hafi verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar. Hann átti stóran þátt í því að leikstíll ÍA gekk eins vel og hann gerði þar sem hann var með áætlunarferðir upp og niður kantinn.

Í sumar hefur Vall verið skugginn af sjálfum sér miðað við það sem hann sýndi í fyrra. Benedikt Bóas Hinriksson ræddi um það í Innkastinu að þetta væri sá Vall sem hann kannaðist við sem stuðningsmaður Vals. Vall tók eitt sumar á Hlíðarenda áður en hann fór í ÍA og var ekki góður þar.

„Johannes Vall er heillum horfinn, gjörsamlega," sagði Sæbjörn Steinke.

„Í fyrra þegar við vorum að horfa á Skagann, það var ekki sami Johannes Vall og var í Val. Þetta var einhver annar. En þetta er minn maður, ég hef séð þennan áður."

Einnig var talað um Árna Marinó Einarsson, Erik Tobias Sandberg, Oliver Stefánsson og fleiri sem hafa spilað mun verr en í fyrra.
Innkastið - Fyrsti hausinn fokinn
Athugasemdir
banner