Eins og fjallað hefur verið um þá hefur Barcelona náð samkomulagi við spænska landsliðsmanninn Nico Williams, vængmann Athletic Bilbao, um kaup og kjör.
Það eru þó enn fjárhagslegar hindranir á veginum fyrir Barcelona.
Deco, íþróttastjóri Barcelona, flaug til Ibiza í gær til að vinna í að fá Williams en þessi 22 ára leikmaður er þar í sumarfríi. Hansi Flick, stjóri Barcelona, er einnig í fríi á eyjunni hvítu.

Williams er búinn að gera upp hug sinn og er ákveðinn í að fara til Barcelona og leika þar við hlið vinar síns Lamine Yamal.
Hinsvegar gæti reynst erfitt fyrir Barcelona að skrá leikmanninn og mögulega þarf félagið að losa leikmenn til að standast fjárhagsreglur spænsku deildarinnar um sjálfbærni.
Athugasemdir