Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Napoli ætlar að vera á undan í kappinu um Milinkovic-Savic
Milinkovic-Savic hefur spilað 158 keppnisleiki á milli stanga Torino.
Milinkovic-Savic hefur spilað 158 keppnisleiki á milli stanga Torino.
Mynd: EPA
Nýkrýndir Ítalíumeistarar Napoli ætla að vera á undan Manchester United í kapphlaupinu um Vanja Milinkovic-Savic, markvörð Torino.

Milinkovic-Savic, yngri bróðir Sergej Milinkovic-Savic sem leikur fyrir Al-Hilal, er með tvö ár eftir af samningi sínum við Torino. Hann hefur verið orðaður við Man Utd á undanförnum mánuðum en Napoli virðist leiða kapphlaupið.

Fabrizio Romano greinir frá því að Napoli sé komið í viðræður við Torino um kaupverð fyrir markvörðinn. Ítalíumeistararnir þurfa að greiða um 20 milljónir evra til að kaupa hann frá Torino.

Fleiri féög fylgjast með þróun mála enda er Milinkovic-Savic orðinn eftirsóttur markvörður eftir flotta frammistöðu undanfarin ár.

Hann er 28 ára gamall með 19 A-landsleiki að baki fyrir Serbíu.
Athugasemdir
banner