Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Leverkusen að krækja í annan miðvörð
Quansah er með 58 keppnisleiki að baki fyrir uppeldisfélag sitt Liverpool.
Quansah er með 58 keppnisleiki að baki fyrir uppeldisfélag sitt Liverpool.
Mynd: EPA
Það er mikið í gangi hjá þýska félaginu Bayer Leverkusen þessa dagana þar sem nokkrir lykilmenn hafa yfirgefið félagið ásamt Xabi Alonso þjálfara.

Stjórnendur Leverkusen eru að reyna að fylla í skörðin sem hafa myndast eftir fremsta megni og eru að ganga frá kaupum á tveimur miðvörðum.

Annar þeirra er Jarell Quansah sem kemur úr röðum Liverpool. Fabrizio Romano segir að Leverkusen sé búið að ná samkomulagi við Liverpool um kaupverð, sem nemur 30 milljónum punda auk árangurstengdra aukagreiðslna.

Quansah er 22 ára gamall en hinn miðvörðurinn sem er að ganga til liðs við félagið er einu ári yngri. Abdoulaye Faye verður 21 árs í september en hann kemur úr röðum BK Häcken í Svíþjóð.

Quansah og Faye munu reyna að berjast við Piero Hincapié, Edmond Tapsoba og Jeanuël Belocian um byrjunarliðssæti í varnarlínunni.

Mögulegt er að Tapsoba eða Hincapié verði seldir í sumar.
Athugasemdir
banner
banner