Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
banner
   fim 19. júní 2025 19:08
Kjartan Leifur Sigurðsson
Byrjunarlið Aftureldingar og Fram: Fred kemur inn á ný
Fred byrjar í fyrsta sinn síðan í byrjun maímánaðar.
Fred byrjar í fyrsta sinn síðan í byrjun maímánaðar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 20:00 hefst leikur Aftureldingar og Fram í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins karla. Byrjunarliðin hafa nú verið gefin út.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 -  1 Fram

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá sigrinum á ÍA. Axel Óskar Andrésson, Aron Jóhannsson, Sigurpáll Melberg Pálsson og Elmar Kári Enesson Cogic fara út úr liðinu en Bjarni Páll Linnet Runólfsson, Aron Jónsson, Sævar Atli Hugason og Þórður Gunnar Hafþórsson koma inn þeirra í stað.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir eina breytingu frá sigrinum á FH. Þorri Stefán Þorbjörnsson fær sér sæti á bekknum og Fred kemur inn í hans stað en Fred hefur ekki byrjað leik síðan í byrjun maímánaðar vegna meiðsla.
Byrjunarlið Afturelding:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
4. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
8. Aron Jónsson
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
19. Sævar Atli Hugason
20. Benjamin Stokke
21. Þórður Gunnar Hafþórsson
30. Oliver Sigurjónsson
77. Hrannar Snær Magnússon

Byrjunarlið Fram:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Róbert Hauksson
10. Fred Saraiva
12. Simon Tibbling
16. Israel Garcia
19. Kennie Chopart (f)
23. Már Ægisson
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
Athugasemdir
banner