Sádi-arabíska félagið Al Hilal hefur ekki gefið upp von á að fá franska vinstri bakvörðinn Theo Hernandez frá AC Milan í sumar.
Al Hilal náði samkomulagi við Milan um kaup á Hernandez fyrir HM félagsliða en Frakkinn hafnaði tilboði félagsins.
Hernandez, sem er 27 ára gamall, vill spila áfram í Evrópu, en til þessa er hann ekki með neitt fast tilboð í höndunum þaðan og gæti það því breytt plönum hans.
Samkvæmt Romano er tilboð Al Hilal áfram á borðinu.
Atlético Madríd, uppeldisfélag Hernandez, er sagt áhugasamt um hann, en það hefur ekki enn náð samkomulagi við Milan um kaup og eru líkur á því að félagið dragi sig alfarið úr viðræðunum ef ítalska félagið lækkar ekki verðmiðann.
Athugasemdir