Crystal Palace er að undirbúa sig fyrir næsta tímabil og er félagið að ganga frá samningi við markvörðinn Walter Benitez. Hann kemur á frjálsri sölu frá PSV Eindhoven í Hollandi.
Þá er Palace einnig að horfa til þess að bæta við sig Ousmane Diomande, miðverði frá Sporting í Portúgal.
Þá er Palace einnig að horfa til þess að bæta við sig Ousmane Diomande, miðverði frá Sporting í Portúgal.
Diomande er einn mest spennandi miðvörður Evrópu en hann hefur leikið með Sporting frá 2023. Hann var keyptur til félagsins frá Midtjylland í Danmörku.
Diomande heillaði á láni hjá Mafra í Portúgal og var sterklega orðaður við Arsenal um tíma, en núna virðast öll vötn renna til Crystal Palace.
Palace vann FA-bikarinn á síðasta tímabili og á að leika í Evrópudeildinni á næsta tímabili. Eitthvað hefur verið rætt um að félaginu verði mögulega meinuð þátttaka út af eigendamálum, en Palace er að undirbúa sig fyrir að taka þátt í keppninni.
Athugasemdir