
Átta liða úrslit Mjólkurbikar karla klárast í kvöld með tveimur leikjum og þá ræðst hvaða fjögur lið munu spila í undanúrslitunum í ár.
Stjarnan og Vestri tryggðu sæti sitt í undanúrslitum í gær en í kvöld mætast ÍBV og Valur á Þórsvellinum í Vestmannaeyjum á meðan Afturelding tekur á móti Fram.
Leikur ÍBV og Vals hefst klukkan 17:30 en hinn leikurinn er spilaður klukkan 20:00 á Malbikstöðinni að Varmá.
Þróttur R. og Fjölnir eigast þá við í Lengjudeild karla klukkan 19:15 og fer þá heil umferð fram í Lengjudeild kvenna.
Leikir dagsins:
Mjólkurbikar karla
17:30 ÍBV-Valur (Þórsvöllur Vey)
20:00 Afturelding-Fram (Malbikstöðin að Varmá)
Lengjudeild karla
19:15 Þróttur R.-Fjölnir (AVIS völlurinn)
Lengjudeild kvenna
17:30 ÍA-ÍBV (Akraneshöllin)
19:15 Fylkir-HK (tekk VÖLLURINN)
19:15 Haukar-KR (BIRTU völlurinn)
19:15 Grindavík/Njarðvík-Keflavík (JBÓ völlurinn)
19:15 Grótta-Afturelding (Vivaldivöllurinn)
2. deild kvenna
19:15 ÍH-KÞ (Skessan)
3. deild karla
19:15 Árbær-Ýmir (Domusnovavöllurinn)
4. deild karla
19:15 Hamar-Álftanes (Grýluvöllur)
19:15 Vængir Júpiters-Hafnir (Fjölnisvöllur - Gervigras)
20:00 KH-Árborg (Valsvöllur)
Athugasemdir