KA þarf að greiða Arnari Grétarssyni rúmar 9,3 milljónir króna auk dráttarvaxta aftur til nóvember 2023. Þetta kom fram í dómi Landsréttar sem kveðinn var upp í dag.
Arnar, fyrrum þjálfari KA og, stefndi KA á síðasta ári en málið sneri að kröfum sem þjálfarinn taldi sig eiga á hendur KA fyrir ógreiddan bónus eftir að hafa hjálpað liðinu að komast í Evrópukeppni.
Arnar, fyrrum þjálfari KA og, stefndi KA á síðasta ári en málið sneri að kröfum sem þjálfarinn taldi sig eiga á hendur KA fyrir ógreiddan bónus eftir að hafa hjálpað liðinu að komast í Evrópukeppni.
Arnar sótti málið fyrir rétti og hafði betur í Héraðsdómi. KA áfrýjaði dómnum en varð ekki ágengt með það.
Í dómsorðum Landsréttar segir:
„Aðaláfrýjandi, Knattspyrnufélag Akureyrar, greiði gagnáfrýjanda, Arnari Grétarssyni, 9.322.601 krónu með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 5. nóvember 2023 til greiðsludags. Aðaláfrýjandi greiði gagnáfrýjanda 3.000.000 í málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti."
Málið snýst um klásúlu í samningi Arnars sem sagði að ef KA næði Evrópusæti fengi hann því sem nemur 10% af allri þeirri fjárhæð sem félagið fengi greitt frá UEFA vegna þátttöku í Evrópukeppni. Arnar var rekinn frá KA áður en tímabilinu lauk.
Athugasemdir