Ítalski kantmaðurinn Federico Chiesa vill skipta um félag eftir eitt ár með Liverpool í enska boltanum.
Chiesa glímdi við meiðsli og náði sér aldrei á strik með Liverpool. Talið var að hann vildi vera áfram hjá félaginu til að reyna að sanna sig og berjast um sæti í byrjunarliðinu, en svo er ekki. Hann vill skipta um félag til að fá meiri spiltíma og auka líkurnar á að komast í ítalska landsliðið.
„Chiesa þarf að spila meira, það er mikilvægt. Dyrnar eru opnar fyrir honum ef hann er í leikformi," sagði Gennaro Ivan Gattuso, nýráðinn landsliðsþjálfari Ítalíu, meðal annars í viðtali á dögunum.
Chiesa sagði í byrjun sumars að hann væri óviss með framtíð sína en nú er ljóst að hann vill róa á önnur mið.
Liverpool borgaði rúmlega 10 milljónir punda til að kaupa Chiesa frá Juventus og mun biðja um svipaða upphæð til að selja hann.
Chiesa er 27 ára gamall og kom að 4 mörkum í 14 leikjum með Liverpool.
Athugasemdir