,,Síðasta atvikið í leiknum zoom-erar upp þessa tíu leiki hjá okkur í sumar.Boltinn fer fyrir galopið markið hjá þeim og vill einhverra hluta vegna ekki fara inn," sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA eftir 1-1 jafntefli við Val í Pepsi-deild kvenna í dag liðið var meirihlutann manni fleiri og Jóhann tekur að á sig að hafa ekki fengið þrjú stig.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Þór/KA
,,Þetta er margt, eitt af því er einbeitingaleysi. Stundum er það líka þannig þegar þig langar eitthvað rosalega mikið og ert að rembast of mikið og þetta sest á sálina. Það vantar alltaf eitthvað og nú vantar okkur að skora mörk og þá vantar leiðir til að skora mrk. Við fáum góðan möguleika í fyrri hálfleik þegar þær fá brottvísun og við víti en þetta dettur ekki og við náum ekki að klára þetta."
,,Það er margt sem spilar inn í þessu, þjálfarar og leikmenn Vals bregðast betur við en þjálfarar og leikmenn Þórs/KA. Þess vegna var seinni hálfleikurinn svona."
,,Við vorum að gera flotta hluti í fyrri hálfleik og mér fannst allt í lagi að fara með 0-0 stöðu í hálfleik, geta endurskipulagt sig og farið í hvað við ætluðum að gera. Það er vandasamt verk að nýta það vel að vera einum fleiri allt í einu. Við töldum okkur vera með got plan í þeim efnum en Valur brást miklu betur við í seinni hálfleiknum en við."
,,Svo fer ég að hræra í liðinu heldur betur og fokka þessu öllu upp á vissum tímapunkti. Það var ágætt að fá mark frá Agínu (Andrea Mist) í restina til að bjarga restinni af andlitinu. Ég viðurkenni að ég tek þetta á mig, þetta er í annað skiptið í sumar sem við erum að tengja illa fyrri og seinni hálfleik og koma ekki nógu markvisst inn í seinni hálfleikinn. Miðað við að hafa verið með fyrri hálfleikinn í höndunum og stýrt þessu frá A-Ö. Þá klikkar eitthvað hjá þjálfaranum þegar hann er að setja upp seinni hálfleikinn og svo fer maður að hræra í þessu líka. Ég var nýbúinn að gera skiptingu þegar við fáum mark í andlitið og það er eitthvað sem ég verð að skoða líka. Ég tek það á mig að við höfum ekki unnið."























