Elvar Geir Magnússon skrifar frá Slóveníu
„Við komum grimmir í þennan leik og erum ekki að fara að gefa þeim neitt," segir landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson en á morgun leikur Ísland við Slóveníu í mikilvægum leik í undankeppni HM.
„Undirbúningurinn hefur verið góður og við höfum fengið góðan tíma til að fara yfir þetta. Það er klárt að við erum vel undirbúnir fyrir þennan leik. Við erum búnir að leikgreina þá og fara yfir það hvar styrkleikar og veikleikar þeirra ligga."
Rúrik Gíslason er venjulega herbergisfélagi Arons en hann tekur ekki þátt í þessu verkefni vegna leikbanns. Aron segist sakna Rúriks en er sáttur með nýja herbergisfélagann, Hólmar Örn Eyjólfsson.
„Það kemur maður í manns stað í herberginu mínu. Núnar er ég með Hólmari og hann hefur verið fínn."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
























