Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 21. apríl 2023 14:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Katla Tryggvadóttir (Þróttur)
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í öruggum höndum á eyðieyjunni
Í öruggum höndum á eyðieyjunni
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Örugglega lært að veiða í Ólafsvík
Örugglega lært að veiða í Ólafsvík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heldur góðri stemningu
Heldur góðri stemningu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katla er einn mest spennandi leikmaður landsins og er oft nefnd sem efnilegasta fótboltakona landsins. Hún er framsækinn miðjumaður með markanef. Þrátt fyrir ungan aldur á hún að baki 51 KSÍ leik og hefur í þeim skorað 31 mark. Leikirnir í efstu deild eru tuttugu og mörkin fimm.

Hún er uppalin hjá Val en skipti yfir í Þrótt fyrir síðasta tímabil og skoraði þá sín fyrstu mörk í efstu deild. Hún er unglingalandsliðskona, er hluti af U19 landsliðinu sem tryggði sér sæti í lokakeppni EM fyrr í þessum mánuði. Í dag sýnir Katla á sér hina hliðina.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 4. sæti

Fullt nafn: Katla Tryggvadóttir

Gælunafn: Stundum KT heima en annars alltaf Katla

Aldur: 17 ára

Hjúskaparstaða: Í sambandi

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Byrjun 2020

Uppáhalds drykkur: Vatn

Uppáhalds matsölustaður: Gló

Hvernig bíl áttu: Toyota Corolla

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Horfi lítið á þætti

Uppáhalds tónlistarmaður: Páll Óskar

Uppáhalds hlaðvarp: FM95BLÖ

Fyndnasti Íslendingurinn: Olla og Sigga

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: “hahahaha” - Olla Sigga

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei segja aldrei

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Vicky López með u17, spilar í dag með Barcelona

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hef haft marga góða, Nik hefur kennt mér margt

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Leikmenn Breiðabliks í yngri flokkunum. Við töpuðum öllum úrslitaleikjunum á móti þeim

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Steven Gerrard

Sætasti sigurinn: Sigurinn á Svíþjóð sem tryggði okkur áfram í lokakeppni u19

Mestu vonbrigðin: Að komast ekki með u17 á lokamót EM í fyrra á markamun

Uppáhalds lið í enska: Liverpool

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Gunnhildur Yrsa

Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Olla Sigga

Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Margir flottir

Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Álfhildur Rósa

Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Alexia Putellas

Hver er mesti höstlerinn í­ liðinu: Pass

Uppáhalds staður á Íslandi: Akkúrat núna er það Þróttaravöllurinn

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar gæs mætti inn á Þróttaravöllinn í miðjum sjónvarpsleik á síðasta tímabili. Þrátt fyrir góða tilburði hjá Írisi og gæslunni neitaði hún að fara útaf

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, stundum handbolta og pílu á veturnar

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adidas Nemeziz

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Ensku

Vandræðalegasta augnablik: Ég hef lent í ýmsu en mér finnst ekki margt vandræðalegt

Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: Ég tæki Fanney til þess að koma okkur af eyjunni, Sædísi sem hefur örugglega lært að veiða í Ólafsvík og Ollu til þess að við deyjum ekki úr leiðindum.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Hef ekki borðað bakkelsi eða nammi síðan ég var 13 ára

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Katie Cousins. Frábær týpa

Hverju laugstu síðast: Man ekki eftir neinu

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spurja Klopp afhverju hann er ekki búinn að kaupa Kevin De Bruyne.
Athugasemdir
banner
banner