Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 21:41
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Leipzig niðurlægði Hoffenheim
Mynd: EPA
Mynd: EPA
RB Leipzig 5 - 0 Hoffenheim
1-0 Brajan Gruda ('17 )
2-0 Christoph Baumgartner ('21 )
3-0 Christoph Baumgartner ('30 )
4-0 Brajan Gruda ('44 )
5-0 Benjamin Henrichs ('78 )

RB Leipzig og Hoffenheim áttust við í eina leik kvöldsins í efstu deild þýska boltans og skoruðu heimamenn í Leipzig fjögur mörk í fyrri hálfleik.

Brajan Gruda, sem er lánsmaður frá Brighton, og Christoph Baumgartner settu sitthvora tvennuna í stórsigri.

Þeir áttu báðir stórleik og áttu stóran þátt í mörkum hjá hvorum öðrum. Í síðari hálfleik skoraði Benjamin Henrichs eina markið til að innsigla 5-0 sigur.

Liðin eru jöfn á stigum eftir þessa viðureign, með 50 stig eftir 27 umferðir í 3.-5. sæti deildarinnar. Ljóst er að meistaradeildarbaráttan verður gríðarlega spennandi á lokakafla þýska deildartímabilsins.

Táningurinn eftirsótti Yan Diomande átti stoðsendingu og var mark dæmt af honum vegna naumrar rangstöðu.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 26 21 4 1 93 25 +68 67
2 Dortmund 26 17 7 2 55 26 +29 58
3 RB Leipzig 27 15 5 7 53 35 +18 50
4 Stuttgart 26 15 5 6 51 34 +17 50
5 Hoffenheim 27 15 5 7 54 39 +15 50
6 Leverkusen 26 13 6 7 49 33 +16 45
7 Frankfurt 26 10 8 8 49 49 0 38
8 Freiburg 26 9 7 10 37 43 -6 34
9 Union Berlin 26 8 7 11 31 42 -11 31
10 Augsburg 26 9 4 13 31 45 -14 31
11 Hamburger 26 7 9 10 29 37 -8 30
12 Gladbach 26 7 7 12 30 43 -13 28
13 Mainz 26 6 9 11 31 41 -10 27
14 Köln 26 6 7 13 35 44 -9 25
15 Werder 26 6 7 13 29 47 -18 25
16 St. Pauli 26 6 6 14 23 42 -19 24
17 Wolfsburg 26 5 6 15 35 56 -21 21
18 Heidenheim 26 3 5 18 24 58 -34 14
Athugasemdir
banner