Dalvík/Reynir 1 - 3 Magni
0-1 Ólafur Jóhann Steingrímsson ('20 )
0-2 Tómas Örn Arnarson ('38 )
0-3 Garðar Gísli Þórisson ('87 )
1-3 Kristján Breki Pétursson ('92)
Rautt spjald: Áki Sölvason, D/R ('59)
Rautt spjald: Þröstur Mikael Jónsson, D/R ('59) - utan vallar
0-1 Ólafur Jóhann Steingrímsson ('20 )
0-2 Tómas Örn Arnarson ('38 )
0-3 Garðar Gísli Þórisson ('87 )
1-3 Kristján Breki Pétursson ('92)
Rautt spjald: Áki Sölvason, D/R ('59)
Rautt spjald: Þröstur Mikael Jónsson, D/R ('59) - utan vallar
Síðustu úrslitin hafa borist eftir leiki kvöldsins í Mjólkurbikarnum þar sem fresta þurfti þremur leikjum vegna veðurs.
Léttir, Uppsveitir og Tindastóll spila því leiki sína seinna en Dalvík/Reynir mætti til leiks gegn Magna frá Grenivík í Boganum í kvöld.
Þar höfðu Grenvíkingar betur eftir að hafa komist í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik.
Ólafur Jóhann Steingrímsson og Tómas Örn Arnarson skoruðu mörkin í fyrri hálfleik og fékk Áki Sölvason að líta beint rautt spjald tæpum stundarfjórðungi eftir innkomu sína af bekknum í síðari hálfleik.
Liðsfélagi hans Þröstur Mikael Jónasson fékk að líta rauða spjaldið á sama tíma en hann sat á bekknum þegar atvikið átti sér stað og misstu Dalvíkingar því aðeins einn mann af velli.
Heimamenn voru því tveimur mörkum undir og leikmanni færri á lokakaflanum þegar þeir fengu þriðja markið á sig, áður en Kristján Breki Pétursson náði að minnka muninn.
Lokatölur urðu 1-3 og er Dalvík/Reynir úr leik í bikarnum. Til gamans má geta að liðin munu leika saman í 2. deild komandi í sumar eftir að Magni komst upp úr 3. deild í fyrra.
Athugasemdir


