Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 14:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íslendingalið á toppnum þegar danska 1. deildin skiptist
Ísak Snær Þorvaldsson.
Ísak Snær Þorvaldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðasta umferðin í dönsku 1. deildinni fyrir skiptingu fór fram í hádeginu í dag.

Íslendingaliðið Lyngby hefur spilað mjög vel að undanförnu og fer inn í skiptinguna sem toppliðið með þriggja stiga forystu á næstu lið. Lyngby gerði 3-3 jafntefli gegn HB Köge í dag í bráðfjörugum leik en Ísak Snær byrjaði leikinn. Hann hefur átt fínasta tímabil.

Nóel Atli Arnórsson byrjaði hjá Álaborg í 1-1 jafntefli gegn Esbjerg en Breki Baldursson var ekki með Esbjerg í leiknum. Álaborg er í sjöunda sæti og í neðri helmingi við skiptingu á meðan Esbjerg situr í fjórða sætinu.

Guðlaugur Victor Pálsson og félagar töpuðu stórt gegn Hvidovre á heimavelli í dag, 0-4, en sluppu í efri helminginn í sjötta sætinu.

Þá spilaði Ólafur Hjaltason í 1-0 tapi Aarhus Fremad gegn Hilleröd. Aarhus Fremad er í níunda sæti af tólf liðum.

Núna skiptist deildin í efstu sex og neðstu sex. Tvö efstu liðin fara upp og tvö efstu liðin fara niður. Lyngby féll úr dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en stefnir beint aftur upp.
Athugasemdir
banner