Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 20:23
Ívan Guðjón Baldursson
Konaté varð fyrir kynþáttaníði
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ibrahima Konaté átti góðan leik þegar Liverpool vann þægilegan 4-0 sigur gegn Galatasaray í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni, eftir að hafa tapað fyrri leiknum 1-0 á útivelli.

Nígeríski framherjinn Victor Osimhen leiddi sóknarlínu Galatasaray en meiddist eftir viðskipti við Konaté í fyrri hálfleik. Honum var skipt af velli í leikhlé og hefur komið í ljós að hann braut bein í framhandlegg sem gæti haldið honum frá keppni í einn til tvo mánuði.

Osimhen er algjör lykilmaður í liði Galatasaray sem er í harðri titilbaráttu í tyrknesku deildinni. Meiðsli hans fóru því fyrir brjóstið á ýmsum stuðningsmönnum risaveldisins sem ákváðu að bregðast við með að senda fordómafull skilaboð á Konaté. Þar var reynt að gera lítið úr Konaté vegna húðlitar hans, sem er þó alls ekki ósvipaður húðlit Osimhen.

„Okkur býður við skilaboðunum sem bárust Ibrahima Konaté eftir leikinn. Þetta er með öllu óásættanlegt," segir í yfirlýsingu frá Englandsmeisturunum fráfarandi.

„Þetta eru afmennskandi og huglaus skilaboð með rætur í hatri. Kynþáttaníð á sér engan stað í fótbolta, samfélaginu eða annars staðar - hvort sem það á sér stað á internetinu eða ekki.

„Íþróttamenn eru ekki skotmörk sem má spúa hatri yfir, þetta eru manneskjur. Þetta hatur kemur yfirleitt frá nafnlausum aðgöngum og setur svartan blett á fótboltann og þá samfélagsmiðla sem leyfa svona hegðun að viðgangast."


Enska úrvalsdeildin gaf einnig út yfirlýsingu þar sem kynþáttaníðið var fordæmt og ítrekaði mikilvægi þess að eigendur stórra samfélagsmiðla byrjuðu að taka á vandanum.

Lögreglurannsókn hefur verið hafin þar sem reynt verður að finna út hvaða manneskjur eru á bak við nafnlausu aðgangana sem sendu rasísk skilaboð til Konaté.
Athugasemdir
banner
banner